Fermingar
Stell býður upp á margvíslega þjónustu fyrir fólk sem er að undirbúa fermingu.
Við bjóðum upp á talsvert úrval af fermingarboðskortum sem þú getur skoðað og pantað hér. Þú getur hlaðið upp eigin mynd, fyllt út eigin texta og valið um liti á letri og skrauti. Smelltu hér til að skoða boðskortin. Ef þú ert með gamla mynd (ekki stafræna) máttu gjarnan senda okkur myndina eða koma með hana til okkar. Athugaðu að skönnun, lagfæringar á skemmdum og eða bakgrunnsbreytingar á ljósmyndum er ekki innifalið í grunnverði á boðskortum. Lágmarksverð fyrir slíkt er 1.500,- krónur með vsk.
Einnig bjóðum við prentun á servíettur eða gyllingu á sálmabækur. Við eigum bláar og rauðar servíettur með gylltum borða sem henta mjög vel til prentunar með gulli. Ef þú villt aðra liti er þér velkomið að koma með eða senda okkur þínar servíettur og við prentum á þær. Smelltu hér til að skoða servíettur. Við gyllum ennfremur á sálmabækur þú getur keypt af okkur eða komið með eigin bók. Smelltu hér til að skoða sálmabækurnar.
Þér er að sjálfsögðu velkomið að koma til okkar og skoða úrvalið á staðnum og ræða við okkur.
